Hlaupara hné eða "Runners knee" eru algeng einkenni hjá fólki á öllum aldri sem stunda hlaup að einhverju leiti. Einkenni lýsa sér sem verkir og óþægindi hliðlægt á hné og einkenni skapast á ákveðnum tímapunkti við hlaup. Sem dæmi er algengt að hlauparinn finni alltaf fyrir einkennum eftir 25 mín. hlaup. Einkenni eru oftast verkur sem er oftast það sterkur að hlauparinn verður að stoppa hlaupið og kemst því ekki lengra. Ástæður eru oftast vegna vöðvastyttingar í hliðlægum vöðva sem heitir Tractus iliotibialis. Þetta er í raun stuttur vöðvi sem liggur frá mjaðmargrind niður á hné og hefur langan bandvef/sinabreiðu en hún skiptir á milli fremra og aftari lærvöðvahólfi. Meðferð byggist upp á að "brjóta upp vítahringinn" og hafa sjúkraþjálfarar hjá Klínik Sjúkraþjálfun sérþékkingu á meðhöndlun "Runners knee".