Tengdar greinar
Heildræn stoðkerfismeðferð skilar mestum langtímaárangri
Einkaþjálfun hjá Klínik Sjúkraþjálfun
Klínik Heilsurækt
Æfingakort í æfingarsal
Æfingasalur tekin í notkun eftir breytingar
Djúpvöðvakerfið í baki-Grein í Morgunblaðinu 4. jan 2010
Gleðilegt nýtt ár-grein um styrktarþjálfun í morgunblaðinu 4 jan. 2010
Í réttum stellingum-grein birt í Morgunblaðinu 19 mars 2009
Grein um bakverki-birt í Morgunblaðinu 5 .sept. 2008
Óæskileg vöðvavirkni hjá þeim sem vinna við tölvur?
Work-related neck and upper limb disorders

 Fróðleikur
Hvað er "Runners knee"?
Brjósklos/hryggþófaröskun
Verkir í framanverðum hnélið
Hvernig er hægt að minnka viðverandi hálsríg?
Helstu orsakir hálsrígs
Þursabit
Verkir
Hvað er “frosin öxl”?
Hversu langan tíma tekur það fyrir “frosna öxl” að gróa?
Hvaða hreyfing axlarliðar verður oftast skert í "frosinni öxl"?
Frosin öxl og batahorfur

 Skráarsafn
 Bæklingur Klínik Sjúkraþjálfun  
- Kynningarbæklingur fyrir Klínik

 
Nýtt í sjúkraþjálfun-Ástandsmat á stoðkerfi líkamans fyrir fólk á aldrinum 8-88 ára.


Klínik Sjúkraþjálfun býður nú upp á ástandsmat á stoðkerfi líkamans. Matið er einstaklingsmiðað og hentar vel þeim sem þurfa aðstoð með að bæta sig líkamlega og auka vellíðan í starfi og leik.

Farið verður yfir líkamstöðu hjá hverjum og einum einstakling,  t.d. er hryggskekkja, er hún áunnin? Hvað er hægt að gera til að leiðrétta skekkjur eða ósamhverfur í líkamanum?
Skoðaðir hreyfiferla liða, er t.d. full hreyfigeta í hálsliðum? Hvað er hægt að gera til að auka hreyfigetu í hálsliðum, kenndar liðkandi æfingar og vöðvateygjur.
Mat á vöðvalengd og vöðvakrafti í helstu vöðvahópum-af hverju verða tveggja liða vöðvahópar oftar fyrir einkennum? Hvaða vöðvahópar eiga það til að styttast með auknum aldri? Hvað er hægt að gera til að vinna gegn hrörnunarferli líkamans?
Farið yfir vinnustöður, vinnuumhverfi  og líkamsbeitingu- hvað er það sem er auðveldlega hægt að breyta til að auka vellíðan? Farið yfir ytri og innri þætti í vinnuumhverfi. Fræðsla er stór þáttur ástandsmats.
Metið grunn ástand einstaklings og síðan endurmat eftir átta vikur.  Kenndar grunn stoðkerfisæfingar-einstaklingsmiðað æfingaprógram.
Kenndar helstu vöðvateygjur-einstaklingsmiðað vöðvateygjuprógram.
Prentuð út ástandsskýrsla og farið yfir skammtíma- og langtímamarkmið til að ná árangri til að auka og viðhalda vellíðan til þess að bæta eigin lífsskilyrði.

Upplýsingar í síma 445-4404



Höfundur greinar - Gísli Sigurðsson